Laugardaginn 23. apríl kom saman góður hópur krakka og fullorðinna við Esjurætur.  JCI Esja stóð þar fyrir páskaeggjaleit í skóginum.  Að leit lokinni var boðið uppá heitt kakó og brauð.  Dregið var í páskabíóhappadrætti og vann stúlka að nafni Freyja 3 miða á fjölskyldumynd að eigin vali.  Áður en haldið var heim á leið fengu allir krakkarnir páskaegg að gjöf.  Góðri fjölskylduskemmtun var þar með lokið og allir héldu sælir til síns heima. J