Áfengi verður bannað í Reykjavík !

Að undanförnu hafa nokkrir vaskir einstaklingar setið Ræðu 1 og nú er komið að lokakvöldinu. Málefnið sem þar verður tekið fyrir ætti að skipta alla Reykvíkinga máli og önnur sveitafélög gætu séð sér ávinning í því að tillagan nái fram að ganga en hún hljóðar svo “Lagt er til að áfengið verði bannað í Reykjavík”
Að venju talar annað liðið með tillögunni og hitt á móti og verður spennandi að sjá hvort liðið mun hafa betur.
Þessi æsispennandi keppni fer fram mánudaginn 27. júní kl:20:00 í sal sjálfstæðismanna í Grafarvogi, Hverafold 1