Áhrifarík markmiðasetning – fimmtudagsfræðsla
Áhrifarík markmiðasetning er námskeið fyrir alla sem vilja öðlast grunn í þessari færni:
- móta heilbrigða og metnaðarfulla stefnu í lífinu yfir lengri tímabil
- móta uppbyggilegar venjur og hegðun sem skila okkur á kjörstað
- takast á við verkefni af mun betri skýrleika og einbeitingu
- upplifa betri uppskeru á flestum sviðum lífsins
Námskeiðið er vinnustofa og tekur um 2 klst, opin bæði JCI félögum og gestum og mun hver þáttakandi meðal annars setja sér 30-50 áhrifarík markmið, bæði til skamms tíma og til lengri tímabils.
Leiðbeinandi er Helgi I. Guðmundsson, félagsmaður JCI Reykjavík og vottaður CNT leiðbeinandi.
Námskeiðið hefst stundvíslega kl 20:05, í boði JCI Reykjavíkur – skráningar eru á namskeid@jcireykjavik.is



