Föstudagskvöldið síðastliðið lukum við tveimur glæsilegum nýliðaferlum með kynningu á viðburðastjórnun. Mætingin var góð og endaði svo kvöldið í glæsilegu Halloween partý þar sem mættu á staðinn fulltrúar kirkju, hinna nýdauðu og fleiri furðuheima. Partýið var með eindæmum vel skipulagt og húsið virkilega skuggalegt í skjóli nætur þar sem köngulær, beinagrindur og maðurinn með ljáinn höfðu tekið sér bólsetu. Einnig var hægt að gæða sér á litríkum drykkjum sem samanstóðu af augum, jarðarberjum og fleira góðgæti. Siggi og Þórey unnu búningakeppnina en þau mættu á staðinn sem fulltrúar Guðs eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Gleðin var allsráðandi og stóð partýið langt fram á nótt.