Föstudagskvöldið 16. september lauk sameiginlegu kynningar- og fræðsluferli JCI Esju og JCI Reykjavíkur.

Að loknu fræðslukvöldi um hvernig skipuleggja eigi viðburði þá gengu sjö nýir félagar til liðs við JCI hreyfinguna.

Nýju félagarnir heita:

Björn Teitur Helgason

Birna Dröfn Birgisdóttir

Erla Hrönn Geirsdóttir

Hannes Johnson

Kristín G. Sigursteinsdóttir

Marta Björk Marteinsdóttir

Sigurður Grétar Viðarsson

Bjóðum við nýja félaga hjartanlega velkomna í JCI.

Glæsilegur hópur nýliða með forsetana krjúpandi fyrir framan. Standandi frá vinstri: Marta, Sigurður, Birna, Hannes, Kristín, Erla, Teitur og Ingólfur. Fyrir framan: Guðlaug og Viktor.