Við í hreyfingunni erum ávallt ánægð með að fá nýja félaga til liðs við okkur. Héðan í frá ætlum við að bjóða þá sérstaklega velkomna með örfréttum hérna á síðunni:

Föstudaginn 4. mars gekk nýr félagi til liðs við JCI Reykjavík. Hann heitir Einar Valmundsson. Forseti JCI Reykjavíkur, Viktor Ómarsson, og landsforseti JCI Íslands, Ingólfur Már Ingólfsson, sáu um inntökuna.

Við bjóðum Einar velkominn til JCI!