Félagsleg færni: Vilt þú hafa áhrif?

JCI Esja heldur námskeiðið “Félagsleg færni” í mars. Námskeiðið er ætlað ungu fólki á aldrinum 18-40 ára sem vill bæta árangur sinn í starfi / félagslífi / einkalífi enda er hægt að nýta efni námskeiðsins á flestum sviðum lífsins. Þetta er þriggja kvölda námskeið auk kynningarkvölds, samtals fjögur kvöld.

Næsta námskeið hefst miðvikudaginn 16. mars kl. 19.30 og skiptast kvöldin þannig:
16. mars   –  1. kvöld – Kynningarkvöld
23. mars   –  2. kvöld – Árangursríkara hópastarf
30. mars   –  3. kvöld – Skilvirkir fundir
6. apríl      –  4. kvöld – Skipulagning viðburða

Nánari upplýsingar um námskeiðið er að nálgast hér -> Félagsleg færni.
Upplýsingar og skráningar veitir Guðlaug: esja@jci.is eða í síma 821-7619

Skráið þáttöku fyrir þriðjudaginn 15.mars