Mánudaginn 7. mars ætlar JCI Reykjavík að hefja aðal ræðunámskeið JCI, Ræðu 1 að því gefnu að nægur fjöldi þátttakenda fáist.

Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Karl Einarsson og Ragnar F. Valsson. Námskeiðið verður á mánudagskvöldum í Hellusundi 3, frá 20:00-22:00, fimm mánudaga í röð en sjötta og síðasta kvöldið sem er ræðukeppni verður fimmtudaginn 14. apríl.

Námskeiðið er félagsmönnum að sjálfsögðu að kostnaðarlausu. Fyrir aðra áhugasama kostar námskeiðið 24.000 kr. Ef þið vitið um líklega þátttakendur þá endilega segið þeim frá námskeiðinu eða okkur í stjórninni frá þeim 🙂

Vinsamlegast skráið þátttöku á namskeid@jcireykjavik.is sem fyrst en þó í síðasta lagi fimmtudaginn 3. mars.