Hið árlega Þorrablót JCI Esju verður haldið laugardagskvöldið 12. febrúar nk. kl. 19.00 í sal Sjálfstæðismanna í Grafarvogi, Hverafold 3.

Félagar okkar frá Frankfurt eru á leiðinni til landsins en þeir verða hressir og kátir eins og þeim einum er lagið. Því er um að gera að fjölmenna á Þorrablótið og eiga með þeim góða kvöldstund.

Verðið er ekki af verri endanum en það kostar aðeins 3.500 kr. fyrir mat og skemmtun, en ef fólk kemur með gest kostar aðeins 3.000 kr. fyrir gestinn

Skráningar berist til Guðlaugar á laugalauga@gmail.com eða í síma 821-7619. Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi miðvikudaginn 9. febrúar.

Hvað: Þorrablót JCI Esju
Hvenær: Laugardaginn 12. febrúar kl. 19.00
Hvar: Hverafold 3, Grafarvogi (inngangur neðan við húsið, blöðrur munu merkja staðinn – 2. hæð)
Fyrir hverja: Alla sem hafa áhuga á góðri skemmtun – alla félagsmenn sem og áhangendur JCI 😉
Hvers vegna: Blóta þorra með félögum okkar frá Frankfurt og eiga góða stund saman!
Verð: 3.500, ef þú kemur með gest kostar 3.000 fyrir gestinn
Skráning: laugalauga@gmail.com eða 821-7619 fyrir miðvikudag 9. febrúar