Fimmtudagsfræðslan í Austurlenskum stíl
Seinni fimmtudagsfræðsla febrúar mánaðar verður fimmtudaginn 25.febrúar kl:20:00 í Hellusundi 3. Arna Björk Gunnarsdóttir mun leiða þátttakendur í allan sannleikann um hin fornu fræði Feng Shui. Fimmtudagsfræðslan er öllum opin meðan að húsrúm leyfir. Hvernig er orkuflæði heimilisins ? Er allt í drasli í samskiptunum ? Rennur auðlegðin óhindruð niður um niðurfallið ? Ert þetta kanski bara allt saman tómt bull ? Öllu þessu og mörgu öðru kemst þú að raun um á fimmtudagsfræðslunni...
lesa meiraLandsforseti á fundi Evrópuforseta JCI
Landsforseti JCI Íslands Árni Árnason er um þessar mundir staddur á Evrópuforsetafundi í Riga í Lettlandi. Á fundinum mun Árni ma. kynna dagskrá í kringum 50 ára afmæli JCI Íslands, hugmyndir að einskonar JCI Þjóðfundi og Nordic Academy sem haldin verður á Íslandi í ágúst. Fundurinn stendur fram á sunnudag. Handhafi landsforsetavalds í fjarveru Árna er Tryggvi Freyr Elínarson landsritari.
lesa meiraFimmtudagsfræðslan
Í fimmtudagsfræðslunni á morgun verður Tryggvi Freyr Elínarson, JCI félagi og leiðbeinandi hjá Góðu vali með námskeiðið Fíllinn. Á þessu stutta og skemmtilega námskeiði ætlar hann að sýna okkur hvernig við tökumst á við stóra drauma og verkefni. Hvernig við getum smátt og smátt í litlum bitum borðað fílinn okkar og náð lengra í lífinu. Dagsetning: Fimmtudagurinn 11. febrúar klukkan 20:00 Staðsetning: Hellusund 3 (JCI húsið) Aðgangseyrir: 0 kr. Námskeiðið er fyrir: - alla á aldrinum 18-40 ára -...
lesa meiraFélagsfundur JCI Esju
Hvernig væri að vera aðeins með einn skattstofn á Íslandi, neysluskatt? Hvað myndi gerast ef við tengdum krónuna við gullfót? Verðum við fyrsta landið sem verður eingöngu með rafrænan gjaldmiðil? Næstkomandi þriðjudag býður JCI Esja félagsmönnum og gestum á spennandi erindi frá ungum manni sem hefur stóra drauma fyrir Ísland og mun á fundinum leitast við að svara ofantöldum spurningum. Geir Konráð Theodórsson heldur erindi um Fönixinn óháða efnahagsáætlun sem er ætluð að vera ferskur blær nýrra...
lesa meira

