Seinni fimmtudagsfræðsla febrúar mánaðar verður fimmtudaginn 25.febrúar kl:20:00  í Hellusundi 3.

Arna Björk Gunnarsdóttir mun leiða þátttakendur í allan sannleikann um hin fornu fræði Feng Shui.  Fimmtudagsfræðslan er öllum opin meðan að húsrúm leyfir.

Hvernig er orkuflæði heimilisins ?

Er allt í drasli í samskiptunum ?

Rennur auðlegðin óhindruð niður um niðurfallið ?

Ert þetta kanski bara allt saman tómt bull ?

Öllu þessu og mörgu öðru kemst þú að raun um á

fimmtudagsfræðslunni 25.febrúar.