Silja Jóhannsdóttir var spyrill kvöldsins

Silja Jóhannesdóttir var spyrill kvöldsins

Laugardagskvöldið 20. apríl var haldið hið árlega Pub Quiz í annað skiptið. Vel var mætt og salurinn smekkfullur af fólki sem hélt sig vera gáfaðast í heimi. Farið var í gegnum þrjár lotur af spurningum héðan og þaðan, á milli var svo heitur stóll þar sem nokkrir voru grillaðir í vissum flokk. Flokkarnir voru Júróvisjón, Johnny Depp og börn.

Lindin vann allar umferðirnar og sendi þrjá liðsfélaga í heitan stól og vann sér inn ógrynni af fljótandi veigum. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn!
Esjan vann árið 2012, Lindin þetta árið en hverjir verða Pub Qiuz meistarar árið 2014? Kemur í ljós á vormánuðum á næsta ári. Takk fyrir komuna fallega fólk. Hlakka til að sjá ykkur að ári.
Höfundur: Silja