Stofnfundur JCI Norðurlands var haldinn á Kaffi Költ á Akureyri að kvöldi 13.október 2012. Fjölmargir félagar úr höfuðborginni, mættu norður af því tilefni.

Katrín Þöll Ingólfsdóttir Gallo tók við embætti forseta JCI Norðurlands og Leó Sigurðsson Mogensen tók við embætti ritara. Hann mun einnig verða starfandi gjaldkeri þar til starfið kemst í fastari skorður.

JCI Norðurland kemur sterkt inn með spennandi dagskrá framundan og fjölmörg tækifæri fyrir ungt fólk á svæðinu.