Kæru félagar!

Fyrsta tölublað JCI frétta hefur nú litið dagsins ljós. Þetta verður vonandi fyrsta skrefið í langri og árangursríkri útgáfu okkar. Hið danska iPaper Magazine gerir okkur þetta kleift og við kunnum þeim bestu þakkir fyrir.

Þetta fyrsta tölublað er 8 síður og sitt mun hverjum þykjast og finnast. Enda á það að vera þannig. En þar sem þetta er miðillinn okkar, þá viljum við endilega fá ábendingar um efni og það sem er gott og það sem er vont.

Undir flipanum “Félaganet” og “Útgefið efni” verður hægt að finna þessa útgáfu og við vonum auðvitað að tölublöðin verði fjöldamörg í framtíðinni. Stefnt er á 1-2 tölublöð í viðbót á þessu ári, en svo tekur ný landsstjórn við og mun eflaust hafa sína eigin áætlun um tölublaðafjölda og efnistök.

Til hamingju með þetta blað. Við hlökkum til að heyra hvað ykkur finnst!