Fjáröflunarkvöldverður

JCI Íslands

Miðvikudaginn 30. mars

á veitingastaðnum Skólabrú,

Pósthússtræti 17

Mæting kl. 18, borðhald hefst um kl. 18.30.

Forréttur

Rjómalöguð humarsúpa með ristuðum humri

Aðalréttur

Ofnbakaður lambavöðvi með kryddjurtahjúp,

ristuðu grænmeti og rósmarínsósu

Á eftir verður boðið uppá kaffi og konfekt.  Fyrir þessar kræsingar greiðast aðeins 4.800 krónur og rennur hluti af andvirðinu til JCI Íslands.

Hafsteinn Þórðarson, senator og landsforseti 1987-1988, mun sjá til þess að allt fari fram með friði og spekt.  Undirritaður mun segja frá stöðunni á hreyfingunni og fyrirætlunum ársins.  Og síðan er aldrei að vita nema fleiri senatorar taki til máls.

Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda tölvupóst á netfangið ingo@jci.is eða hringja í gsm 695-1360.  Athugið að þetta er viðburður haldinn í nafni JCI Íslands og er eingöngu ætlaður senatorum.

Vonast ég til að sjá sem flesta.

Með JCI-kveðju,

Ingólfur Már Ingólfsson

Landsforseti JCI Íslands 2011

& senator #65284