Undirbúningur fyrir JCI árið 2011  er nú í fullum gangi bæði hér heima og erlendis.   Heimsþing er nýafstaðið og þar var Kentaro Harada frá JCI Japan kosin heimsforseti, þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem stærsta landshreyfing JCI á heimsforseta.  Kentaro starfaði sem IVP í Evrópu 2008  og EVP fyrir Asíu á þessu ári.   Að venju voru kosnir fjórir EVP og 17 IVP umsjónarmaður Íslands fyrir árið 2011  er Guillaume Aubanel frá Frakklandi,  Guillaume var landsforseti JCI Frakklands 2009 .   Hans Henrik Quesseth frá JCI Danmörku var  jafnframt kosin EVP fyrir Evrópu Hans Henrik eða Q eins og hann er jafnan kallaður var landsforseti 2006, IVP 2007 og formaður  EDC 2009. 

Af íslenskum vettvangi er það að frétta að þau Guðlaug Birna Björnsdóttir JCI Esju  og Viktor Ómarsson  JCI Reykjavík boðið sig fram til forseta í sínum aðildarfélögum.   Þau hafa bæði verið að undirbúa næsta ár ásamt væntanlegum samstarfsmönnum.    Landsstjórn 2011  hefur verið ásamt félögum JCI Íslands í mjög ítarlegri stefnumótunarvinnu. Það má því búast við að árinu 2011 verði nýjar og breyttar áherslur en starfið þó byggt á áratuga grunni.