Fimmtudaginn 25. mars verður Tryggvi Freyr Elínarson með fimmtudagsfræðsluna í JCI húsinu.   Tryggvi mun fara

í gegnum það helsta sem á og má og má alls ekki í atvinnuviðtölum.   Þetta er námskeið sem gagnast öllum, hvort sem þeir eru í atvinnulei eða ekki þar sem sömu lögmál gilda að miklu leyti um annarskonar samningafundi.

Að venju er fimmtudagsfræðslan öllum opin og hefst kl:20:00.

Hvað : Framkoma í atvinnuviðtölum

Hvar: Hellusundi 3.

Hvenær: Fimmtudaginn 25.mars kl:20:00