Fimmtudaginn 18.mars næstkomandi verður félagsfundur JCI Esju, Lindar og Reykjavíkur haldinn í Sjálfstæðissalnum í Kópavogi, Hlíðarsmára 19.  Fundurinn hefst kl:20:00 og er öllum opinn meðan að húsrúm leyfir.

Gestur fundarins verður Jón Gerald Sullenberger kaupmaður í Kosti,  Jón mun segja fundarmönnum frá því hvernig það er að byggja upp fyrirtæki í því viðskiptaumhverfi sem ríkir á Íslandi í dag.