Páskaglens JCI 2013 – frábær fjölskylduskemmtun


Hið árlega páskaglens JCI Esju verður haldið laugardaginn 30. mars kl. 11 á skógræktarreit ríkisins að Mógilsá við Esjurætur (sjá kort neðst).
Frábær fjölskylduskemmtun fyrir alla JCI félaga og vini, börn þeirra, barnabörn, vinabörn, lánsbörn, systkini, frænda, frænkur….. (o.s.frv.)

ATH Nauðsynlegt er að skrá sig og öll börn sem taka þátt fyrir kl. 17 miðvikudaginn 27. mars svo nóg sé af eggjum fyrir börnin!

Dagskrá:

  • Páskaeggjaleit – börnin leita að páskaeggjum í skóginum
  • Kakó, kaffi og með því – allir geta svo gætt sér á kaffi, heitu kakói og með því eftir leitina.
  • Páskabíóhappadrætti – dregið verður úr skráðum börnum í happadrætti. Vinningshafinn fær gjafabréf upp á þrjá bíómiða á fjölskyldumynd að eigin vali!
  • Öll börn fá svo veglegt súkkulaðiegg með sér heim.

Verð er aðeins 1.600 kr. fyrir hvert barn.

Skráning
Skráning fer fram hjá Söru á srk356@hotmail.com
Taka þarf fram fjölda og nöfn barnanna og gott að hafa upplýsingar um fjölda fullorðinna líka.

Kort og leiðarlýsing:
Þegar komið er frá Reykjavík er beygt til hægri inn Lækjarmel áður en komið er að göngusvæði við Esjurætur. Keyrt er aðeins áfram Lækjarmel og svo beygt til vinstri inn að Mógilsá. Þá er að lokum beygt inn á bílastæði við hús skógræktarfélagsins. Að lokum er gengið aftan við húsið þar sem við hittumst og hefjum glensið.

Kort af Mógilsár-svæðinu

Kort af svæðinu

Dags. og tími:
30. Mar 2013
11:00 - 13:00

Staður:

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: