Kynningarnámskeið JCI í HR – kvöld 3 af 4


Kvöld 3 – Skilvirkir fundir

Flestir ef ekki allir hafa setið klassískan fund sem skilaði litlu eða engu, var í raun bara endurtekning á síðasta fundi. Að sama skapi hafa flestir gengið út af fundi sem átti að skila miklu, var boðaður með góðum fyrirvara og leit út fyrir að vera skipulagður en leystist svo bara einhvernveginn upp í spjall, umræður, hugsanlega rifrildi og þegar upp var staðið skilaði hann engri eða litlum niðurstöðum og ekkert var ákveðið.

Á þessu námskeiði muntu öðlast skilning á því hvað veldur svona fundum og öðlast færni til að koma í veg fyrir þá, hvort sem það er með því að mæta ekki á þá eða með því að beita betri aðferðafræði við stjórnun, framkvæmd og skipulagningu þeirra.

Upplýsingar um hin kvöldin:
Kvöld 1 – Kynningarkvöld
Kvöld 2 – Árangursríkt hópastarf
Kvöld 3 – Skilvirkir fundir
Kvöld 4 – Árangursríkt hópastarf og partý 

Dags. og tími:
24. Feb 2016
20:00 - 22:00

Staður:
Háskólinn í Reykjavík, stofa V-108

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: No Categories