Kynningarnámskeið JCI – Kvöld 3 af 4


Kvöld 3 – Skilvirkir fundir – 5. apríl 2017

Flestir ef ekki allir hafa setið klassískan fund sem skilaði litlu eða engu, var í raun bara endurtekning á síðasta fundi. Að sama skapi hafa flestir gengið út af fundi sem átti að skila miklu, var boðaður með góðum fyrirvara og leit út fyrir að vera skipulagður en leystist svo bara einhvernveginn upp í spjall, umræður, hugsanlega rifrildi og þegar upp var staðið skilaði hann engri eða litlum niðurstöðum og ekkert var ákveðið.

Á þessu námskeiði muntu öðlast skilning á því hvað veldur svona fundum og öðlast færni til að koma í veg fyrir þá, hvort sem það er með því að mæta ekki á þá eða með því að beita betri aðferðafræði við stjórnun, framkvæmd og skipulagningu þeirra.

Athugið að kynningarnámskeiðið er ókeypis og opið öllum á JCI aldri (18-40 ára)

Upplýsingar um hin kvöldin:
Kvöld 1 (22. mars 2017) – Kynningarkvöld
Kvöld 2 (29. mars 2017) – Árangursríkt hópastarf
Kvöld 3 (5. apríl 2017) – Skilvirkir fundir
Kvöld 4 (12. apríl 2017) – Skipulagning viðburða

 

ATH: Ef þú skráir þig á þetta þriðja kvöld þarftu ekki að skrá þig á fjórða kvöldið.

 

Skráning

Bookings are closed for this event (For members only (then you need to log in or register) - or the event has already started and therefore it is closed for bookings)

Dags. og tími:
05. Apr 2017
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: