Kynningarnámskeið JCI – Kvöld 2 af 4


Kvöld 2 – Árangursríkt hópastarf – 29. mars 2017

Á þessu námskeiði verða kynnt 5 þrep sem eiga að geta gert hvaða hóp sem er að árangursríku teymi. Við munum skoða hvað það er sem veldur því að sumir hópar vinna illa saman, hvað veldur árekstrum og hvað veldur því að sumir einstaklingar í hópastarfi skila litlu sem engu.

Jafnframt munum við skoða gaumgæfilega hvað það er sem veldur því að sum teymi ná hreint ótrúlegum árangri. Við munum rýna í aðferðafræði, skoða samsetningu hópa út frá persónuleikafræðum og rýna í ólík hlutverk ólíkra einstaklinga í hópastarfi.

Athugið að kynningarnámskeiðið er ókeypis og opið öllum á JCI aldri (18-40 ára)

Upplýsingar um hin kvöldin:
Kvöld 1 (22. mars 2017) – Kynningarkvöld
Kvöld 2 (29. mars 2017) – Árangursríkt hópastarf
Kvöld 3 (5. apríl 2017) – Skilvirkir fundir
Kvöld 4 (12. apríl 2017) – Skipulagning viðburða

 

ATH: Ef þú skráir þig á þetta annað kvöld þarftu ekki að skrá þig á hin tvö kvöldin sem eru í beinu framhaldi.

 

Þetta námskeið er í Reykjavík en hafir þú áhuga á að taka þátt í starfinu á Akureyri, þá sendu okkur línu á jci@jci.is.

Skráning

Bookings are closed for this event (For members only (then you need to log in or register) - or the event has already started and therefore it is closed for bookings)

Dags. og tími:
29. Mar 2017
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: