Kynningarnámskeið JCI – kvöld 4


Hvernig á að halda frábæran og vel heppnaðan viðburð?

Hvort sem stefnt er að því að halda lítinn eða stóran viðburð þarf alltaf að huga að skipulagningu eigi vel til að takast. Á þessu námskeiði verður farið ofan í saumana á því sem kallað er „best practises“ þegar á að skipuleggja viðburð, skoða tímaferla og áætlanagerð, hvernig markmið eru skilgreind fyrir mismunandi viðburði, hvernig kynningar og markaðsstarfi er háttað og fleiri mikilvæga þætti í ferlinu.

Það er að ýmsu að huga þegar skipuleggja á góðan viðburð, hvort sem það er lítil afmælisveisla eða árshátíð hjá stóru fyrirtæki og munum við sjá hvernig þekking og skilningur á árangursríku hópastarfi og skilvirkum fundarhöldum fléttast hér inn og spilar mikilvæga rullu í undirbúningi og skipulagningu viðburða.

Eftir að námskeiðinu lýkur gefst þátttakendum kostur á að ganga inn í JCI. Húsið er þá opið öllum JCI félögum svo þeir sem eru á námskeiðinu geta kynnst félögum.

Athugið að kynningarnámskeiðið er ókeypis og opið öllum á JCI aldri (18-40 ára)

Námskeiðið fer fram rafrænt á Zoom. Við mælum með að taka þátt í gegnum tölvu. Hlekkur á námskeiðið verður sendur skráðum þátttakendum.

Skráning

Bookings are closed for this event (For members only (then you need to log in or register) - or the event has already started and therefore it is closed for bookings)

Dags. og tími:
20. Apr 2021
19:30 - 21:30

Staður:

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: No Categories