Kynningarnámskeið JCI – kvöld 3


Við viljum öll að fundir séu stuttir, hnitmiðaðir og skili árangri!

Flestir ef ekki allir hafa setið klassískan fund sem skilaði litlu eða engu, var í raun bara endurtekning á síðasta fundi. Að sama skapi hafa flestir gengið út af fundi sem átti að skila miklu, var boðaður með góðum fyrirvara og leit út fyrir að vera skipulagður en leystist svo bara einhvernveginn upp í spjall, umræður, hugsanlega rifrildi og þegar upp var staðið skilaði hann engum eða litlum niðurstöðum og ekkert var ákveðið.

Á þessu námskeiði muntu öðlast skilning á því hvað veldur svona fundum og öðlast færni til að koma í veg fyrir þá, hvort sem það er með því að mæta ekki á þá eða með því að beita betri aðferðafræði við stjórnun, framkvæmd og skipulagningu þeirra.

Athugið að kynningarnámskeiðið er ókeypis og opið öllum á JCI aldri (18-40 ára)

Námskeiðið fer fram rafrænt á Zoom. Við mælum með að taka þátt í gegnum tölvu. Hlekkur á námskeiðið verður sendur skráðum þátttakendum.

Næsta kvöld er:
Kvöld 4 (20. apríl 2021) – Skipulagning viðburða

Skráning

Bookings are closed for this event (For members only (then you need to log in or register) - or the event has already started and therefore it is closed for bookings)

Dags. og tími:
13. Apr 2021
19:30 - 21:30

Staður:

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: No Categories