JCI Reykjavík hélt upp á Reykjavíkurdaginn laugardaginn 1. sept.
Yfirskrift dagsins var Miklihvellur sem er vísun í það góða og kraftmikla starf sem
framundan er í haust.
Dagskrá dagsins var fjölbreytt, má þar nefna fyrirlestra um markmiðasetningu, keppni
og leik sem sýndi á skemmtilega máta samsetningu hópsins.

Um kvöldið var svo slegið á létta strengi með partý og grilli.