Laugardaginn 23. júní síðastliðinn var JCI Esja með ansi magnaðann dag fyrir félagsmenn í Hljómskálagarðinum. Á þessum skemmtilega degi var unnið með félagsandann, liðsheildina og persónulegar framfarir.

Sólin mætti á svæðið í öllum sínum ljóma og heyrst hefur að sumir hafi brunnið nokkuð vel enda ekki íslendingar ekki vanir að þurfa að maka á sig sólarolíu eins og þeir væru á Spáni.

Formlegri dagskrá lauk svo með útigrilli en gleðin hélt áfram fram eftir kvöldi.