Hið árlega páskaglens JCI Esju verður haldið á skírdag, fimmtudaginn 5. apríl kl. 11 á skógræktarreit ríkisins að Mógilsá við Esjurætur (sjá kort neðst).

Frábær fjölskylduskemmtun fyrir alla JCI félaga og vini, börn þeirra, barnabörn, vinabörn, lánsbörn, systkini, frænda, frænkur….. (o.s.frv.)

ATH Nauðsynlegt er að skrá sig og öll börn sem taka þátt fyrir kl. 17 miðvikudaginn 4. apríl svo nóg sé af eggjum fyrir börnin!

Dagskrá:

  • Páskaeggjaleit – börnin leita að páskaeggjum í skóginum
  • Kakó, kaffi og með því –  allir geta svo gætt sér á kaffi, heitu kakói og með því eftir leitina.
  • Páskabíóhappadrætti – dregið verður úr skráðum börnum í happadrætti. Vinningshafinn fær gjafabréf upp á þrjá bíómiða á fjölskyldumynd að eigin vali!
  • Öll börn fá svo veglegt súkkulaðiegg með sér heim.

Verð er aðeins 1.500 kr. fyrir hvert barn.

[box]

Skráning

Skráning fer fram hjá Guðlaugu á esja@jci.is eða í síma 821-7619.

Vinsamlega takið fram fjölda og nöfn barnanna.[/box]

Kort og leiðarlýsing:

Þegar komið er frá Reykjavík er beygt til hægri inn Lækjarmel áður en komið er að göngusvæði við Esjurætur. Keyrt er aðeins áfram Lækjarmel og svo beygt til vinstri inn að Mógilsá. Þá er að lokum beygt inn á bílastæði við hús skógræktarfélagsins. Að lokum er gengið aftan við húsið þar sem við hittumst og hefjum glensið.