Síðastliðinn fimmtudag var Andri Ottesen með fimmtudagsfræðslu um það hvernig stjórna má huganum í gegnum líffræði heilans.

Fræðslan var bæði fróðleg og áhugaverð og sóttu um 20 manns fræðsluna. Meðal þeirra þrettán atriða sem Andri fór yfir er að vera jákvæður og heppinn, hugleiða, og taka lýsi til að geta stjórnað huganum.

Þökkum við Andra fyrir góðan og skemmtilegan fyrirlestur.