Sameiginlegur félagsfundur

JCI Reykjavík mun standa að sameiginlegum félagsfundi þann 14. febrúar sem hefst klukkan 20.00. Fundurinn verður haldinn í Gyllta salnum á Hótel Borg.
Hér er viðburðurinn á Facebook: http://www.facebook.com/events/299894916735256/

Námskeiðið Ræða I

Ræða I hefst fimmtudaginn 16. febrúar kl. 20.00 og verður námskeiðið haldið í Hellusundi 3.
Nú þegar er orðið fullt á námskeiðið og ekki tekið við fleiri skráningum.

The JCI Apprentice Academy

Laugardaginn 18. febrúar stendur JCI fyrir einstökum Apprentice laugardegi með námskeiði og verkefnavinnu. Húllumhæið hefst klukkan 12 stundvíslega og lýkur klukkan 18:30
Hér er viðburðurinn á Facebook: http://www.facebook.com/events/269780959761933/

Þorrablót JCI Esju

Hið stórskemmtilega þorrablót Esjunnar sem haldið er árlega fer fram næstkomandi laugardagskvöld (18. febrúar). Þorrablótið verður vafalítið jafn glæsilegt og undanfarin ár og því má búast við kjaftfullu húsi og stórkostlegri skemmtun.
Hér er viðburðurinn á Facebook: http://www.facebook.com/events/207197536044814/