Síðastliðinn þriðjudag, 14. febrúar, stóð JCI Reykjavík að sameiginlegum félagsfundi JCI Esju, JCI Lind og JCI Reykjavík í Gyllta salnum á Hótel Borg.

Fundurinn var með hinu glæsilegasta móti. Gestur fundarins var Robbert van Waart, VP Evrópu 2012. Hann hélt erindi um boðskap, starfsemi og tilgang JCI, og hvað JCI þýðir fyrir hann. Hann lauk erindinu með því að minnast á þema JCI árið 2012 sem er Passion into Action. Fundurinn var vel heppnaður og mæting félagsmanna var góð.