Hlutverk JCI er að skapa tækifæri fyrir ungt fólk (18-40 ára) til að efla hæfileika sína og með því stuðla að jákvæðum breytingum.

Ef þú vilt…
… kynnast nýju fólki og stækka tengslanetið þitt.
… sækja fjölbreytt námskeið og viðburði.
… auka færni þína í framkomu og ræðumennsku.
… vera hluti af alþjóðlegri hreyfingu ungs fólks.

Þá er JCI eitthvað fyrir þig!

Næsta nýliðanámskeið okkar fer af stað í byrjun janúar en námskeiðið er samsett af fjórum kvöldum. Þetta er góð leið til að byrja árið af krafti og opna fyrir ný tækifæri.

Þriðjudagurinn 3. janúar 2012, kl. 20:00 – Kynning á JCI
Þriðjudagurinn 10. janúar 2012, kl. 20:00 – Árangursríkt hópastarf
Þriðjudagurinn 17. janúar 2012, kl. 20:00 – Skilvirkir fundir
Föstudagurinn 20. janúar 2012, kl. 20:00 – Skipulagning viðburða + partý

Vinsamlegast staðfestið þátttöku með tölvupósti á namskeid@jcireykjavik.is með fullu nafni og símanúmeri.