Á fimmtudagsfræðslu fimmtudaginn 11. nóvember verður stutt námskeið sem nefnist Fiskur í  félagsstarfi.  Námskeiðið er byggt á hugmyndafræði félaganna á fiskmarkaðnum í Seattle.  Þar sem hlutirnir ganga útá það að skemmta sér í vinnunni.  Þetta stutta námskeið er mjög gagnlegt öllum sem þurfa að vinna í hóp, jafnframt er auðvelt að yfirfæra hugmyndafræðina  yfir á vinnustaði  og jafnvel heimilislífið.    Árni Árnason JCI Lind CNT  er leiðbeinandi á fimmtudagsfræðslunni að þessu sinni.

Fimmtudagsfræðslan hefst að venju kl:20.00 allir eru velkomnir meðan að húsrúm leyfir í JCI húsinu Hellusundi 3.