Hið síunga félag JCI Esja áður JCI Nes fagnar 30. starfsári sínu um þessar mundir.       Af því tilefni er blásið til veislu sem hefst með léttum veitingum  í Hellusundi laugardaginn 23. október kl:18:00  þá liggur leiðin á á veitingastaðinn Pottin og Pönnuna (gömlu Skólabrú).  Þar sem boðið verður uppá glæsilegan þriggja rétta matseðil.   Bryan Allen Smith mun sjá um veislustjórn af sinni alkunnu kæti.
 Allir félagar og velunnarar Esjunar eru velkomnir, Lilja Kristjánsdóttir tekur við  skráningum á netfangið liljak17@hotmail.com fyrir fimmtudaginn 21.okt

Forréttur

Súpa dagsins og nýbakað brauð

 

Aðalréttur

Grillaður lambavöðvi með villisveppum, kartöfluragú og béarnaise sósu

eða

Skötuselur með mangó, chilli og engifersósu, ristuðu grænmeti og hrísgrjónum

 Eftirréttur

Frönsk súkkulaðikaka með ferskum ávöxtum og þeyttum rjóma

 

Aðeins: 4.500 kr á mann