Landsstjórn var afhent góð gjöf í gær, 31.mars 2010.

Hreyfingunni voru gefin 100 páskaegg að stærð 4.

Af þessu tilefni blæs landsstjórn til kaffisamsætis  í  Hellusundi dag  kl 14:00- 16:00 og allir þeir sem sem mæta verða leystir út með páskaeggi(meðan birgðir endast).  Hér á við hið fornkveðna fyrstur kemur fyrstur fær.

Félagar eru hvattir til að koma og taka með sér gesti í tilefni dagsins.

Viljum við þakka sælgætisgerðinni Góu þessa frábæru gjöf.