Kæru félagar

Um leið og landstjórn 2010 óskar ykkur gleðilegs árs vonum við að þið hafið átt ánægjulega jólahátíð. JCI starfið er nú að fara af stað og svo að dagskráin framundan verið í samræmi við væntingar félagsmanna verður haldinn fundur mánudaginn 11.janúar kl:20:00 í Hellusundi 3. Námskeið og verkefni verða kynnt á fundinum, fundarmenn fá svo tækifæri til að ræða málin og leggja sjálfir fram drög að dagskrá JCI á þessu misseri.
Vonumst til þess að sjá sem flesta
Landsstjórn 2010