Verkefnavinna Sumarið 2009

Á fimmtudagskvöld kl 20:00 í JCI húsinu verður kynning á verkefnum sem áhugi er fyrir að starfa að í sumar.  Um er að ræða fjölbreytt verkefni, bæði innlend og með alþjóðlegum vinkli, sem höfða til allra.

Nú í sumar eru margir sem hafa úr auknum tíma að spila. Það að taka þátt í skemmtilegu verkefni er bæði afar uppbyggileg notkun á tíma, gefur skemmtilega upplifun og reynslu af því að vinna með öðrum einstaklingum og getur fætt af sér óvænt tækifæri þegar fram líða stundir.

Við hvetjum JCI félaga til að láta þessi tækifæri ekki framhjá sér fara – fyrsta skrefið er afar einfalt.  Mætið í kvöld, fáið ykkur kaffi og meðlæti með okkur og fáið kynningu á þeim verkefnum sem eru á döfinni.  Hver veit, þarna gæti verið verkefni sem smellpassar við þitt áhugasvið!

Verkefnasumar JCI 2009 hefst í kvöld – JCI húsið, Hellusundi 3, 101 Reykjavík kl 20:00.