Næstkomandi þriðjudagskvöld, þann 21. apríl kl. 20:00 verður félagsfundur JCI GK.

Fundurinn verður haldinn í sal Óháðasafnaðarins sem staðsettur er á horni Skaftahlíðar og Háteigsvegar.

Gestur fundarins að þessu sinni er Pétur Rafnsson, fyrrum félagi í JCI Reykjavík og margreyndur kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins í gamla Reykjaneskjördæmi. Nú styttist óðfluga í sjálfan kosningadaginn og ekki amalegt að fá beint í æð upplýsingar frá Pétri um það hvernig það er að vera kosningastjóri á ögurstundum sem þessum.

Allir eru velkomnir og endilega takið með ykkur gest(i).

Undir önnur mál er öllum sem áhuga hafa frjálst að láta ljós sitt skína, endilega nýtið ykkur það tækifæri.

Eins og JCI GK er von og vísa þá verða góðar veitingar í boði félagsins.