Félagsfundur JCI Esju

Sunnudagur, febrúar 7, 2010 19:06

Hvernig væri að vera aðeins með einn skattstofn á Íslandi, neysluskatt?
Hvað myndi gerast ef við tengdum krónuna við gullfót?
Verðum við fyrsta landið sem verður eingöngu með rafrænan gjaldmiðil?

Næstkomandi þriðjudag  býður JCI Esja félagsmönnum og gestum á spennandi erindi frá ungum manni sem hefur stóra drauma fyrir Ísland og mun á fundinum leitast við að svara ofantöldum spurningum.

Geir Konráð Theodórsson heldur erindi um Fönixinn óháða efnahagsáætlun sem er ætluð að vera ferskur blær nýrra hugmynda. Má búast við spennandi og skemmtilegum umræðum.

Dagssetning: Þriðjudaginn 9. Febrúar

Staðsetning: JCI Húsið, hellusundi 3

Tími: 20:00 – 22:30

Hægt er að lesa Fönixáætlunina hér

http://freepdfhosting.com/7aff18361c.pdf

Svona eru upphafsorð Fönixáætlunarinnar:

“Þetta er ritað á erfiðum tímum fyrir vora þjóð.

Ríkið, atvinnulífið og fjöldi einstaklinga standa frammi fyrir gríðarlegum skuldum. Efnahagslífið var byggt á brauðfótum, knúið áfram af skuldum og neyslu, og nú virðist ráðaleysi stjórnmálamanna ætla að leiða okkur, börnin okkar og barnabörn, blint í þrælahlekki skulda og skriffinnsku. Á Íslandi ríkir vonleysi.

Ei meir, því uppúr ösku þessa lands mun nýtt og betra þjóðfélag rísa!

Í rúmt ár hef ég leitað að úrræðum fyrir mitt heittelskaða land, og þá reynt að fara út fyrir hinar hefðbundnu lausnir stjórnmálamanna. Á þessum tíma hef ég tekið rjómann af þeim erlendu efnahagshugmyndum og áætlunum sem ég hef fundið, ásamt því að blanda við eigin hugmyndum, sem flestar eiga rætur sínar að rekja til hagfræði af austurríska skólanum. Þetta rit inniheldur kynningu af afrekstrinum, hinn svokallað Fönix, sem áætlun fyrir nýtt Ísland, þar sem jafnrétti, frelsi og skynsemi verða undirstöður þjóðfélagsins. “

Opinn fundur með heimsforseta

Laugardagur, janúar 30, 2010 6:34

JCI Ísland stendur fyrir opnum fundi með heimsforseta í kvöld kl:20:30 fimmtudaginn 04.febrú.  JCI félögum og þeim sem hafa áhuga á að kynna sér JCI gefst tækifæri á að hitta Roland Kwemain frá Camreoon en hann gegnir embætti heimsforseta JCI 2010. Á þessum áhugaverða fundi mun Roland gefa okkur góða sýn á það hversu mikið einstaklingurinn getur vaxið og dafnað af því að taka þátt í starfi JCI. Auk þess mun hann ræða hvaða gildi félagasamtök eins og JCI hafa fyrir samfélagið og félagslega ábyrgð fyrirtækja.

Fundurinn hefst kl:20:30 fimmtudaginn 4.febrúar í Hugmyndahúsi Háskólanna Grandagarði 2, 101 Reykjavík
Fundurinn er öllum opinn meðan að húsrúm leyfir.

Roland Kwemain

Roland fæddist árið 1971 í Yaoundé í Cameroon, hann var kjörinn heimsforseti JCI á heimsþingi hreyfingarinnar í Tunis í nóvember sl. Roland er með gráðu í markaðsfræði auk þess sem hann hefur lokið diplóma námi í CSR og Sustainable Development frá The World Bank Itstitute. Hann stofnaði og hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra ADCOME frá árinu 1999. ADCOME eru samtök sem starfa án tillits til hagnaðar og markmið þeirra er að þjálfa ungmenni og samfélög í 21.aldar samskiptum , sem eru nauðsynleg til framþróunar og bættara lífs.
Roland hefur sótt 11 svæðaþing, 5 heimsþing, hann útskrifaðist frá 18. JCI Academíunni sem haldin var í Kobe 2005, hann er senator nr:67333
Á árinu 2010 mun Roland ferðast til fjölmargra landa og hitta þúsundir JCI félaga. Það er JCI Íslandi mikill heiður að taka á móti Roland nú í febrúar.

Roland mun halda fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík fimmtudaginn 4.febrúrar kl:12:00.

Þá um kvöldið fimmtudaginn 4.febrúar kl:20.30 mun JCI félögum, þeim sem vilja kynna sér hreyfinguna og velunnurum gefast tækifæri til að hitt Roland á opnum fundi. Þar mun hann fara ýtarlega yfir þau tækifæri sem JCI félögum standa til boða með þátttöku sinni.

“Frelsið er handan óttans”

Fimmtudagur, janúar 28, 2010 20:00

Eins og fram hefur komið hér á síðunni var fyrsta fimmtudagsfræðslan í Hellusundinu í kvöld en annan og fjórða fimmtudag í mánuði verður boðið uppá fræðslu í JCI húsinu.

Seinni fimmtudag mánaðarins verður leitast við að fá reynda JCI félaga til að kynna gamalt og eða nýtt efni. Segja má að verið sé að leyfa starfandi félögum að njóta goðsagna JCI, reynslu þeirra og visku.

Það er óhætt að segja að þátttakendur kvöldsins urðu ekki fyrir vonbrigðum.
Gísli Blöndal senator frá JCI Reykjavík kynnti fyrir okkur þá félaga Loka, Lása, Þef og Þeyting, úr bókinni Hver tók ostinn minn? Þátttakendur sáu í þeim félögum vini, fjölskyldu og jú janfnvel sig sjálfa (svona ef vel var að gáð).

Frábærlega skemmtilegt og gagnlegt námskeið sem Gísli þýddi ásamt Halli Hallssyni árið 2003, þetta efni á ótrúlega vel við í dag, en það er nú yfirleitt þannig með gott efni, það á alltaf við. Allir þátttakendur fóru útaf námskeiðinu með eitthvað í farteskinu og setningin “frelsið er handan óttans” ómar í höfði undirritaðrar og mun sennilega gera næstu daga og án vafa mun upplifun kvöldsins hafa í för með sér ýmsar breytingar.

Ég vil fyrir hönd okkar allra þakka Gísla fyrir frábæra kvöldstund.

Fimmtudagsfræðsla í febrúar verður dagana 11. og 25. ég mun ekki láta mig vanta á þau kvöld, það skal ítrekað að þessi kvöld eru öllum opin sem hafa áhuga á því að læra.

-abg

Hver tók ostinn minn ? Fimmtudagsfræðsla

Þriðjudagur, janúar 26, 2010 4:28

Fyrsta fimmtudagsfræðsla ársins verður í JCI húsinu Hellusundi 3 fimmtudaginn 28.janúar kl:20:00.

Í tilefni af 50 ára afmæli JCI Íslands hefur verið leitað til eldri félaga og senatora að koma með nýtt eða gamalt og sígilt efni einu sinni í mánuði og leyfa okkur að njóta. Gísli Blöndal senator úr JCI Reykjavík mun ríða á vaðið og kynna fyrir okkur námskeiðið Hver tók ostinn minn? Bráðskemmtilegt og gagnlegt námskeið, allir eru velkomnir meðan að húsrúm leyfir.

Hver tók ostinn minn?


Hvernig bregstu við öllum þeim breytingum sem nú eiga sér stað?

Reynist þér erfitt að sjá út fyrir rammann?

Til þess að nýta hæfileika okkar sem best verðum við að kunna
aðferðir sem
leiða okkur í átt til framfara.

Í síbreytilegu umhverfi verðum við að takast á við síbreytileg
verkefni.
Við verðum að þekkja styrkleika okkar og veikleika og kunna að nýta
okkur
sem best þá hæfileika sem við búum yfir.

Flest erum við bundin í viðjum vanans og sjáum oft ekki út fyrir
rammann –
greinum ekki með jákvæðum hætti hvers við erum í raun megnug og
hvernig við
getum breytt aðstæðum okkur í hag.

Þetta námskeið hjálpar þér að takast á við verkefni þín í
nútíð og framtíð.
Þetta námskeið er um ÞIG og það hvernig ÞÚ ætlar að takast á
við breytingar
í lífi þínu. Það snýst líka um að sjá það jákvæða í lífinu
frekar en það
neikvæða. Ekki bara hvort glasið er hálf fullt eða hálf tómt heldur
hvað er
í glasinu!

Reikningar ársins 2009 til sýnis

Þriðjudagur, janúar 12, 2010 19:30

Reikningar ársins 2009 verða til sýnis fyrir JCI félaga í félagsheimilinu okkar í Hellusundi 3, fimmtudaginn 14.01,2010 frá 17:00- 21:00. Allir eru hvattir til að koma við í húsinu og kynna sér reikningana svo hægt sé að samþykkja þá á FS fundi á laugardag.

Framkvæmdastjórnar fundur JCI Íslands

Þriðjudagur, janúar 12, 2010 4:37

Framkvæmdastjórnar fundur JCI Íslands verður haldinn laugardaginn 16.janúar næstkomandi kl:13:00. Fundurinn verður haldinn í safnaðarheimili Óháðasafnaðarins Háteigsvegi 56. (á horni Háteigsvegar og Skaftahlíðar). Allir JCI félagar og áhugasamir eru hvattir til að mæta á fundinn. Að venju verður árið 2009 gert upp og starfsáætlun ársins 2010 lögð fram, bæði af aðildarfélögunum og landstjórn. Ýmislegt fleira verður kynnt svo sem Evrópuþing, heimsþing og erlend námskeið og academíur.

Fundur fyrir alla félaga í JCI húsinu 11.01.

Laugardagur, janúar 9, 2010 22:01

Kæru félagar

Um leið og landstjórn 2010 óskar ykkur gleðilegs árs vonum við að þið hafið átt ánægjulega jólahátíð. JCI starfið er nú að fara af stað og svo að dagskráin framundan verið í samræmi við væntingar félagsmanna verður haldinn fundur mánudaginn 11.janúar kl:20:00 í Hellusundi 3. Námskeið og verkefni verða kynnt á fundinum, fundarmenn fá svo tækifæri til að ræða málin og leggja sjálfir fram drög að dagskrá JCI á þessu misseri.
Vonumst til þess að sjá sem flesta
Landsstjórn 2010

Gleðileg JCI áramót

Þriðjudagur, desember 29, 2009 17:04

JCI Áramót

Gleðileg jól

Miðvikudagur, desember 23, 2009 8:29

Gleðileg JCI jól

Landsstjórnarskipti

Miðvikudagur, desember 2, 2009 14:57

landstjornarskipti5. Desember kl. 20:30 að Laugarvegi 18 Room with a view – hótel – (gengið inn milli Dressmann og Bókabúðar Máls og menningar).

Landsstjórnarskipti að þessu sinni verða með öðru sniði en undanfarin ár því við hittumst á Laugaveginum í kokteil þar sem landsstjórnarskipti fara fram en færum okkur svo yfir í Hellusund kl. 22:00 og njótum þar kvöldsins eins lengi og við viljum í húsinu okkar.

Þessi viðburður er fyrir alla JCI-félaga virka sem óvirka á öllum aldri
Þú villt ekki missa af þessu, frábært kvöld til að líta yfir árið 2009 og hlakka um leið til ársins 2010 – 50 ára afmælis árs JCI Íslands

Hlökkum til að sjá þig…