WordPress námskeið fyrir byrjendur


Næsta WordPress námskeið JCI Lindar verður haldið fimmtudaginn 18. október frá kl. 20:00 til 22:00 í Hellusundi 3, 101 Reykjavík.

WordPress er vefumsjónarkerfi sem auðveldar umsjónarfólki vefsvæða að setja inn fréttir, búa til síður, setja inn viðburði, selja vörur og auðvitað, blogga. JCI, Mashable, TechCrunch, Menn, BleiktPressan, Eyjan og Lemúrinn eru með sín vefsvæði í WordPress kerfi ásamt öðrum tugum milljóna fyrirtækja og einstaklinga. WordPress er ekki bara eitt vinsælasta vefumsjónarkerfi á jörðinni heldur er það númer 1 og þar af eru um 50% blogga í WordPress.

Námskeiðið er ætlað byrjendum í WordPress þar sem farið verður í grunnatriði kerfisins og verða þátttakendur færir um að setja inn færslur, síður og viðburði á vefsvæði í lok námskeiðs.

Leiðbeinandi verður Þórey Rúnarsdóttir, upplýsingatækniráðgjafi hjá Expectus og JCI félagi með meiru.

Skráning

Bookings are closed for this event (For members only (then you need to log in or register) - or the event has already started and therefore it is closed for bookings)

Dags. og tími:
18. Oct 2012
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: