Ræða 1 – Ræðunámskeið JCI


Ræðunámskeið – Kynning á námskeiðinu

  • Vilt þú efla sjálfstraust þitt og bæta framkomu?
  • Vilt þú koma skilaboðum þínum skýrt á framfæri?
  • Vilt þú halda betri kynningar og ræður?
  • Vilt þú eiga auðveldara með að koma fram?

Áratuga reynsla!

JCI hefur áratuga reynslu af ræðunámskeiðum og hefur boðið meðlimum sínum upp á ræðunámskeið frá stofnun félagsins á Íslandi auk þess að bjóða reglulega upp á opin námskeið fyrir alla sem vilja bæta sig.

Árangur í atvinnulífinu byggir meðal annars á því að geta tjáð skoðanir sínar með áhrifamiklum hætti, geta sannfært aðra, selt þeim hugmyndir sínar og vera öruggur í samskiptum og framkomu hvort sem er fyrir framan lítinn eða stóran hóp af fólki.

Þeir aðilar sem hafa góð tök á ræðumennsku njóta forskots hvort sem er á sviði atvinnulífs, stjórnmála eða á öðrum vettvangi. Framúrskarandi ræðumennska er list sem byggir á markvissri þjálfun og hnitmiðaðri tækni.

Ef þú vilt losna við stressið sem fylgir því að halda kynningar og ræður og vilt verða sannfærandi í framkomu, þá er þetta tækifærið!

Fyrirkomulagið

Námskeiðið samanstendur af sex kvöldum:

24. okt. – farið í gegnum lykilþætti góðrar ræðumennsku og uppbyggingu góðra ræðuskrifa
31. okt. – sjálfvalið efni
7. nóv. – tækifærisræða
14. nóv. – söluræða / sölukynning
21. nóv – mótmælaræða
Að lokum er lokakvöld sem kemur á óvart (athuga að dagsetning er u.þ.b. viku eftir 5. kvöldið en getur breytst)

Kvöldin eru öll krydduð með ráðum frá leiðbeinendum og ýmsum æfingum auk þess sem þátttakendur fá heimaverkefni eftir hvert kvöld. Leiðbeinendur veita jafnframt endurgjöf sem hjálpar til við að bæta tæknina jafnóðum. Aðalleiðbeinandi er Arna Björk Gunnarsdóttir sem hefur margra ára reynslu af ræðumennsku og þjálfun á því sviði. Nýjasta verkefni hennar var að þjálfa alla fyrirlesara fyrir Tedx Reykjavík núna í byrjun september í framsögu og líkamstjáningu.

Þetta námskeið hjálpar jafnt fólki í atvinnulífinu og þeim sem þurfa að kynna verkefnin sín í skólanum.

Mikilvægt! Það þarf að skuldbinda sig amk. 5 af þessum 6 kvöldum til þess að útskrifast og að námskeiðið gangi upp. 15 sæti eru í boði á hverju námskeiði.

Verð og greiðslufyrirkomulag

Ókeypis fyrir félaga JCI Íslands (félagar þurfa að skuldbinda sig í eitt ár)
Verð fyrir utanaðkomandi: 48.000 kr.
Verð fyrir stúdenta: 38.000 kr.

Athugið að mörg stéttarfélög og fyrirtæki niðurgreiða námskeiðskostnaðinn.
Hægt er að greiða með með millifærslu eða fá kröfu í heimabankann sinn.

Skráðu þig hér að neðan, að hámarki 15 komast að. Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að senda póst á annapals@jci.is eða hringja í Önnu í síma 782-7792. Vinsamlegast takið fram í komment hvaða greiðslufyrirkomulag á við.

Skráning

Bookings are closed for this event (For members only (then you need to log in or register) - or the event has already started and therefore it is closed for bookings)

Dags. og tími:
24. Oct 2017 - 21. Nov 2017
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: