Kynningarnámskeið – Kvöld 3 af 3


Kvöld 3 – Skilvirkir fundir og skipulagning viðburða

Flestir ef ekki allir hafa setið klassískan fund sem skilaði litlu eða engu, var í raun bara endurtekning á síðasta fundi. Að sama skapi hafa flestir gengið út af fundi sem átti að skila miklu, var boðaður með góðum fyrirvara og leit út fyrir að vera skipulagður en leystist svo bara einhvernveginn upp í spjall, umræður, hugsanlega rifrildi og þegar upp var staðið skilaði hann engum eða litlum niðurstöðum og ekkert var ákveðið.
Á þessu námskeiði mundu öðlast skilning á því hvað veldur svona fundum og öðlast færni til að koma í veg fyrir þá, hvort sem það er með því að mæta ekki á þá eða með því að beita betri aðferðafræði við stjórnun, framkvæmd og skipulagningu þeirra.
Auk þess förum ofan í saumana á því sem kallað er “best practises” þegar á að skipuleggja viðburð, skoða tímaferla og áætlanagerð, hvernig markmið eru skilgreind fyrir mismunandi viðburði, hvernig kynningar og markaðsstarfi er háttað og fleiri mikilvæga þætti í ferlinu. Það er að ýmsu að huga þegar skipuleggja á góðan viðburð, hvort sem það er lítil afmælisveisla eða árshátíð hjá stóru fyrirtæki og munum við sjá hvernig þekking og skilningur á árangursríku hópastarfi og skilvirkum fundarhöldum fléttast hér inn og spilar mikilvæga rullu í undirbúningi og skipulagningu viðburða.

Hin kvöldin eru:
Kvöld 1 – Kynningarkvöld
Kvöld 2 – Árangursríkt hópastarf
Kvöld 3 – Skilvirkir fundir og skipulagning viðburða

Dags. og tími:
25. Sep 2012
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: