Kynningarnámskeið – Kvöld 2 af 4


Kvöld 2 – 17. október – Árangursríkt hópastarf

Á þessu námskeiði verða kynnt 5 þrep sem eiga að geta gert hvaða hóp sem er að árangursríku teymi. Við munum skoða hvað það er sem veldur því að sumir hópar vinna illa saman, hvað veldur árekstrum og hvað veldur því að sumir einstaklingar í hópastarfi skila litlu sem engu.

Jafnframt munum við skoða gaumgæfilega hvað það er sem veldur því að sum teymi ná hreint ótrúlegum árangri. Við munum rýna í aðferðafræði, skoða samsetningu hópa út frá persónuleikafræðum og rýna í ólík hlutverk ólíkra einstaklinga í hópastarfi.

Hin kvöldin eru:
Kvöld 1 (13. nóvember 2013) – Kynningarkvöld
Kvöld 2 (20. nóvember 2013) – Árangursríkt hópastarf
Kvöld 3 (27. nóvember 2013) – Skilvirkir fundir
Kvöld 4 (4. desember 2013) – Skipulagning viðburða

Dags. og tími:
20. Nov 2013
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: