Kynningarnámskeið – Kvöld 2 af 4


Kvöld 2 – 17. október – Árangursríkt hópastarf

Á þessu námskeiði verða kynnt 5 þrep sem eiga að geta gert hvaða hóp sem er að árangursríku teymi. Við munum skoða hvað það er sem veldur því að sumir hópar vinna illa saman, hvað veldur árekstrum og hvað veldur því að sumir einstaklingar í hópastarfi skila litlu sem engu.

Jafnframt munum við skoða gaumgæfilega hvað það er sem veldur því að sum teymi ná hreint ótrúlegum árangri. Við munum rýna í aðferðafræði, skoða samsetningu hópa út frá persónuleikafræðum og rýna í ólík hlutverk ólíkra einstaklinga í hópastarfi.

Hin kvöldin eru:
Kvöld 1 (10. október 2012) – Kynningarkvöld
Kvöld 2 (17. október 2012) – Árangursríkt hópastarf
Kvöld 3 (24. október 2012) – Skilvirkir fundir
Kvöld 4 (26. október 2012) – Skipulagning viðburða (föstudagskvöld)

Dags. og tími:
17. Oct 2012
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: