Kynningarkvöld JCI


Kynningarkvöld – 14. febrúar 2018 kl. 20:00 í Hellusundi.

Er JCI eitthvað fyrir þig?

JCI er fyrir alla á aldrinum 18-40 ára sem vilja hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Í JCI geta einstaklingar fengið verkfæri til þess að efla sjálfa sig og aðra með framkvæmd verkefna og taka þátt í störfum hreyfingarinnar. JCI býður uppá fullt af tækifærum til dæmis með skemmtilegum námskeiðum, víkka út tengslanetið og ná sér í dýrmæta reynslu með því að hrinda í framkvæmd eigin hugmyndum og nota þekkinguna sem maður hefur aflað sér.

Einstaklingar geta fengið tækifæri til þess að þjálfa og styrkja leiðtogahæfileikana sína í framkvæmd.

 

Þá skaltu grípa tækifærið og koma á kynningarnámskeiðið 14. febrúar! Námskeiðið er ókeypis fyrir alla á aldrinum 18-40 ára

Mynd

Á fyrsta kvöldinu kynnum við hreyfinguna og þátttakendum gefst tækifæri til að kynnast félögum og fá betri innsýn í starfið. Við segjum frá því hvað það er sem við gerum, af hverju, hvernig og hvað er framundan hjá okkur. Einnig hvernig áhugasamir geti tekið þátt og notið ávaxta starfs okkar. Við förum við yfir þær leiðir sem við notum til að byggja upp sterka einstaklinga og hvernig það nýtist þér til að hafa jákvæð árif á samfélagið. Jafnframt verða næstu kvöld kynnt lauslega; hvað þau ganga út á, hvers má vænta af þeim og hvaða þekkingu/færni þátttakendur mega búast við að öðlast.

Námskeiðið spannar 3 kvöld og verða næstu kvöld miðvikudagana 21 og 28 febrúar.

 

Hlökkum til að sjá þig

Kveðja
Skipuleggjendur

Hægt að hafa samband við Ríkey Jónu Eiríksdóttur í tölvupósti á rikeyjona@jci.is ef einhverjar spurningar vakna

 

Skráning

Bookings are closed for this event (For members only (then you need to log in or register) - or the event has already started and therefore it is closed for bookings)

Dags. og tími:
14. Feb 2018
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: