Hótel Marina býður heim- kynning á áherslum í markaðsmálum


Guðlaugur Kristmundsson, einn af sölu- og markaðsstjórum Icelandair hótelanna ætlar að taka á móti okkur í bíósal Marina hótelsins. Hann mun segja okkur annars vegar frá sjálfum sér og hvernig hann komst í þá stöðu sem hann er í, í dag. Hinsvegar mun hann segja okkur frá áherslum í markaðsstarfi hótelanna og hvernig þau byggja þá stefnu upp.

Guðlaugur hefur unnið sig upp innan Icelandair keðjunnar og hefur áður verið flugþjónn og hótelstjóri svo að eitthvað sé nefnt. Hann er stjórnmálafræðingur og hefur í gegnum tíðina lagt mikið upp úr því að vera markmiðssettur og ná sínum markmiðum. Eftir þessa heimsókn er svo happy hour fyrir okkur á Slippbarnum sem er í sama húsi.

Athugið að það er takmarkað sætaframboð og einungis 26 komast að. Til að skrá sig sendið póst á silja@jci.is.

Skráning

Bookings are closed for this event (For members only (then you need to log in or register) - or the event has already started and therefore it is closed for bookings)

Dags. og tími:
06. Dec 2012
20:00 - 21:00

Staður:
Hótel Marina

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: