Fundarstjórnun – námskeið


Námskeið í Fundarstjórnun verður haldið þriðjudagskvöldin 17. og 24. nóvember og 1. og 8. desember kl 20:00

Takmarkaður sætafjöldi (10 sæti)

Verð: 2.000 kr, bókin Fundarsköp fylgir með.

Um námskeiðið:

Þetta er tilvalið námskeið fyrir alla þá sem vilja geta stjórnað fundi. Nú eða þá sem eru þreyttir á hversu miklum tíma er sóað í lélega fundi og vilja halda skilvirka fundi sem skila árangri.
Farið er yfir öll grundvallaratriði fundarskapa og þátttakendur fá tækifæri til að framfylgja réttum fundarsköpum og stjórna fundum samkvæmt þeim. Farið er í meðhöndlun breytingartillagna hverskonar, úrskurði deilumála o.fl.

Tilgangurinn er að þjálfa þátttakendur í að taka virkan þátt í fundarstörfum og tryggja markvissan og góðan fund.
Námskeiðið er 4 kvöld, þriðjudagskvöldin 17. og 24. nóvember og 1. og 8. desember kl 20:00
ATH að mæta þarf á ÖLL fjögur kvöldin til að útskrifast af námskeiðinu.

Aðalleiðbeinandi er Viktor Ómarsson og verður hann með góðan aðstoðarleiðbeinanda sér til halds og trausts.

Námskeiðið er haldið í JCI húsinu, Hellusundi 3

Vinsamlegast skráið ykkur á skráningarforminu hér að neðan. Hægt verður að skrá sig á biðlista eða senda fyrirspurnir á hafthor.gudmundsson@jci.is

Hvað: Námskeið í fundarstjórnun
Hvenær: Fjögur kvöld, þriðjudagskvöldin 17. og 24. nóvember og 1. og 8. desember kl 20:00
Hvar: JCI húsinu, Hellusundi 3
Hver: Opið öllum JCI félögum
Hvernig: Skráðu þig hér!
Verð: 2.000 kr – Bókin Fundarsköp fylgir með – leggið inn á reikning 537-26-500095, kennitala 6801942979 og senda kvittun á  hafthor.gudmundsson@jci.is (eftir að hafa fengið staðfest sæti).

Meeting-Management

Skráning

Fullbókað er á þennan viðburð. (This event is fully booked.)

Dags. og tími:
17. Nov 2015
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: