Fundarritun – námskeið


Námskeið í Fundarritun verður haldið þriðjudagskvöldin 26. mars og 2. apríl kl. 20:00

Takmarkaður sætafjöldi (12 sæti)

Um námskeiðið:

Flesta fundi þarf að rita. Þegar slíkt er ekki gert eða illa gert þá lýsir það sér í löngum fundarsetum sem nánast eru til einskis þar sem fundirnir skilja lítið eftir sig og ákvörðunum og framkvæmdum er illa fylgt eftir.

Þetta námskeið þjálfar þátttakendur til að geta verið fundarritarar á öllum fundum, allt frá stórum aðalfundum niður í einfalda fundi hjá nefndum eða vinnuhópum. Tilgangurinn er að þátttakendur geti skráð gerðir funda beint í fundagerðabók til upplestrar og samþykktar í fundarlok. Einnig er farið yfir önnur atriði sem eru gagnleg öllum þeim sem sitja, rita og stjórna fundum.
Námskeiðið er tvö kvöld, þriðjudagskvöldin 26. mars og 2. apríl

Í dag nota flestir tölvu en það er gott að geta mundað pennann

Í dag nota flestir tölvu en það er gott að geta mundað pennann

Leiðbeinendur eru Arna Björk Gunnarsdóttir og Guðlaug Birna Björnsdóttir

Námskeiðið er haldið í JCI húsinu, Hellusundi 3

Vinsamlegast skráið ykkur á skráningarforminu hér. Hægt verður að skrá sig á biðlista eða senda fyrirspurnir á esja@jci.is

Hvað: Námskeið í fundarritun
Hvenær: Tvö kvöld, þriðjudagskvöldin 26. mars og 2. apríl
Hvar: JCI húsinu, Hellusundi 3
Hver: Opið öllum JCI félögum
Hvernig: Skráðu þig hér!

Skráning

Bookings are closed for this event (For members only (then you need to log in or register) - or the event has already started and therefore it is closed for bookings)

Dags. og tími:
26. Mar 2013
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: