Árangursríkt hópastarf


Haustið er svo sannarlega komið og tími til að opna JCI fyrir mögulegum félögum!

JCI er vettvangur til að sækja fullt af skemmtilegum námskeiðum,  víkka út tengslanetið og ná sér í dýrmæta reynslu með því að hrinda í framkvæmd eigin hugmyndum og þeirri þekkingu sem maður hefur aflað sér.

Ef þú vilt…

… öðlast færni sem nýtist á vinnustaðnum sem og félagslífinu
… kynnast nýju fólki og stækka tengslanetið þitt
… skila betri árangri í hópastarfi, á fundum, við skipulagningu viðburða

Þá ert þú á réttum stað!

Námskeiðið spannar að þessu sinni þrjú kvöld

1. kvöld 29. ágúst – Kynningarkvöld
2. kvöld 5. september – Árangursríkara hópastarf
3. kvöld 12. september – Skipulagning viðburða

 

Árangursríkt hópastarf (Kvöld nr. 2)

Á þessu námskeiði verða kynnt 5 þrep sem eiga að geta gert hvaða hóp sem er að árangursríku teymi. Við munum skoða hvað það er sem veldur því að sumir hópar vinna illa saman, hvað veldur árekstrum og hvað veldur því að sumir einstaklingar í hópastarfi skila litlu sem engu.

Jafnframt munum við skoða gaumgæfilega hvað það er sem veldur því að sum teymi ná hreint ótrúlegum árangri. Við munum rýna í aðferðafræði, skoða samsetningu hópa út frá persónuleikafræðum og rýna í ólík hlutverk ólíkra einstaklinga í hópastarfi.

 

Þátttakendum gefst kostur á að ganga inn í JCI á námskeiðunum og eftir að þeim lýkur. Allir á aldrinum 18-40 ára eru velkomnir að líta við og sitja námskeiðin skilyrðislaust og gjaldfrjálst.

Skráning

Bookings are closed for this event (For members only (then you need to log in or register) - or the event has already started and therefore it is closed for bookings)

Dags. og tími:
05. Sep 2017
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: