Árangursríkt hópastarf – Frítt námskeið


Áteamwork þessu námskeiði verða kynnt 5 þrep sem eiga að geta gert hvaða hóp sem er að árangursríku teymi. Við munum skoða hvað það er sem veldur því að sumir hópar vinna illa saman, hvað veldur árekstrum og hvað veldur því að sumir einstaklingar í hópastarfi skila litlu sem engu.

Jafnframt munum við skoða gaumgæfilega hvað það er sem veldur því að sum teymi ná hreint ótrúlegum árangri. Við munum rýna í aðferðafræði, skoða samsetningu hópa út frá persónuleikafræðum og rýna í ólík hlutverk ólíkra einstaklinga í hópastarfi.

Námskeiðið fer fram í JCI húsinu í Hellusundi 3. Opið fyrir alla sem vilja kynna sér hópastarf og teymisvinnu betur.

Endilega látið sjá ykkur.

Dags. og tími:
31. Aug 2016
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: No Categories