Lokað hefur verið fyrir tilnefningar til Framúrskarandi ungra Íslendinga. Fjöldi tilnefninga barst og fékk dómnefndin það erfiða hlutverk að velja tíu manns úr þeim hópi.

 

Topp 10 hópinn skipa:

Annie Mist Þórisdóttir, íþróttakona

Ari Bragi Kárason, tónlistarmaður

Axel Kristinsson, íþróttaþjálfari

Gunnar Nelson, íþróttamaður

Guðmundur Hallgrímsson, fatahönnuður

Halldór Helgason, snjóbrettakappi

Heiða Kristín Helgadóttir, stjórnmálakona

Katrín Jakobsdóttir, stjórnmálakona

Leifur Leifsson, baráttumaður hreyfihamlaðra

Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leikari

 

Af þessum tíu hefur dómnefndin einnig valið fjóra verðlaunahafa. Spennandi verður að fylgjast með hver af þessum framúrskarandi ungu Íslendingum verða verðlaunuð af forsetanum þann 31. maí nk.

Dómnefndina skipa Garðar Thor Cortes, Guðjón Már Guðjónsson, Kristín Rós Hákonardóttir og Viktor Ómarsson

Dómnefndin við störf